Kann fólkið þitt á gervigreind?

Eða er það bara að prófa sig áfram — eitt og óstutt?

Alvio hjálpar mannauðsteymum að taka Microsoft Copilot í notkun í eigin Microsoft 365-umhverfi: Copilot agents sem fólkið þitt notar daglega, og þjálfun til að nota þá vel.

Svona lítur það út þegar mannauðsteymi kann á gervigreind.

Beiðnir í Teams

Starfsfólk biður um orlof, endurgreiðslu kostnaðar, vottorð eða ferðaheimild beint í Teams. Agentinn skráir beiðnina í Dataverse og kemur henni til rétts aðila.

Handbók og stefnur

Agent sem svarar spurningum um starfsmannahandbók og stefnur út frá ykkar eigin skjölum í SharePoint. Hvert svar vísar í heimildina svo hægt sé að treysta því.

Nýliðar

Agent sem leiðir nýtt starfsfólk í gegnum fyrstu vikurnar: hvað á að gera, hvern á að hitta, hvar hlutirnir eru. Mannauðsteymið á innihaldið, agentinn svarar hvenær sem er.

Microsoft 365 Copilot í Word, Outlook og Teams

Starfsauglýsingar, undirbúningur viðtala og drög að frammistöðumati á broti af tímanum. Með Microsoft Purview haldast mannauðsgögn innan ykkar eigin umhverfis.

Gervigreindarlæsi er mannauðsmál.

Ekki tækniverkefni. Ekki lögfræðiverkefni. Þitt verkefni.

  • Gervigreindarlæsi er skylda gagnvart starfsfólki samkvæmt gervigreindarreglugerð ESB. Hún snýst um hvort fólk skilji hvað tólið gerir, hvar það bregst og hvenær á að vísa máli áfram. Það er þjálfun og hlutverkahönnun, ekki kerfisstilling. Við þjálfum á þremur stigum sem hluta af hverri innleiðingu.
  • Mannauðsgögn eru viðkvæmar persónuupplýsingar. Þess vegna koma flokkun og gagnavernd í Microsoft Purview fyrst. Mannauður ákveður hvað agentinn má sjá. Upplýsingatæknin framfylgir því.
  • Gervigreind sem tekur ákvarðanir um ráðningar, stöðuhækkanir eða starfslok, eða hefur veruleg áhrif á þær, telst áhættusöm samkvæmt gervigreindarreglugerð ESB. Agent sem svarar spurningum eða skráir beiðnir gerir það ekki. Hvor leiðin er farin er ákvörðun mannauðs, og við tökum hana með ykkur.

Dæmi.

Beiðna-agent fyrir íslenska smásölusamstæðu: um 25 tegundir beiðna, átta Dataverse-töflur, ein leið inn fyrir starfsfólk í Teams.

Copilot Spark Day fyrir mannauðKveikja

Einn dagur á staðnum. Í lok dags á mannauðsteymið tvo eða þrjá virka Copilot Studio-agents í eigin umhverfi og 90 daga áætlun með nafngreindum ábyrgðaraðila.

Lengd
Einn dagur
Snið
Á staðnum, fast umfang
Verð
Fast, tilboð að beiðni

Hittum ykkur á Mannauðsdeginum í Hörpu 2. október.

Bókaðu 20 mínútna spjall á staðnum, eða sendu línu á alvio@alvio.is.

Bóka spjall á Mannauðsdeginum

Eftir ráðstefnuna: Bóka Copilot Spark Day fyrir mannauð

Spurt og svarað.

Þurfum við Microsoft 365 Copilot-leyfi fyrir alla?

Nei. Copilot Studio-agents nota Copilot Studio-afkastagetu sem ykkar umhverfi hefur ef til vill þegar. Microsoft 365 Copilot-leyfi þarf aðeins fyrir þá sem nota Copilot í Word, Outlook og Teams. Við kortleggjum þetta á Spark Day.

Getur agentinn séð launagögn?

Aðeins ef þið ákveðið það. Aðgangur fylgir heimildum í Microsoft Entra og flokkun í Microsoft Purview. Sjálfgefið sér agentinn ekkert sem notandinn sjálfur sér ekki.

Hvert fara gögnin?

Hvergi út fyrir ykkar umhverfi. Allt keyrir í ykkar eigin Microsoft 365, undir ykkar auðkennum og stillingum. Ekkert fer til Alvio eða þriðja aðila.

Hversu langan tíma tekur þar til eitthvað virkar?

Einn dag. Spark Day skilar tveimur eða þremur virkum agentum. Framleiðsluútgáfa með stefnu, þjálfun og stýringum tekur vikur, ekki mánuði.

Hver heldur þessu við eftir að þið farið?

Þið. Nafngreindur ábyrgðaraðili úr ykkar teymi er með frá fyrsta degi, byggir með okkur og fær allt afhent. Ráðgjöf eftir á er í boði að beiðni.